Fotbolti.net
16.07.17 - 06:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Tom Huddlestone til Derby (Staðfest)

Tom Huddlestone í leik með Hull City.

Tom Huddlestone í leik með Hull City.

Canon

Mynd: Getty Images

Tom Huddlestone er kominn aftur til Derby County, þar sem hann hóf atvinnumannaferilinn.
Hann kemur til Derby frá Hull City sem féll úr ensku úrvalsdeildinni síðasta vor.

Kaupverðið er talið vera um 2 milljónir punda og hann skrifar undir tveggja ára samning við enska Championship liðið með möguleika á árs framlengingu.

Þessi þrítugi miðjumaður fór ungur að árum til Tottenham frá Derby. Hann lék hjá Spurs frá 2005-2013 en þá færði hann sig yfir til Hull City.

„Ég fór héðan mjög ungur að árum, en jafnvel þá sagði ég alltaf að ég myndi einn daginn snúa aftur,\" sagði Huddlestone eftir undirskriftina.

DONE DEAL: @Huddz8 is a Ram - again! #DCFC have completed the signing of Tom Huddlestone from @HullCity: https://t.co/dxm0R3SGnE ? pic.twitter.com/p9eg3iyH3y

-- Derby County (@dcfcofficial) July 15, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.