Fotbolti.net
16.07.18 - 21:33
Arnar Daði Arnarsson

Dagný Brynjars í Selfoss (Staðfest)

Dagný er komin heim.

Dagný er komin heim.

Canon

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Kvennaboltinn
Landsliðskonan Dagný Brynjarsdóttir hefur skrifað undir samning við knattspyrnudeild Selfoss um að leika með liði félagsins í Pepsi-deildinni út þessa leiktíð.
Undirskriftin fór fram í sólinni á Selfossi í dag á veitingastaðnum Kaffi Krús.

Dagný kemur til félagsins frá Portland Thorns í bandarísku atvinnumannadeildinni en hún lék síðast knattspyrnu í október síðastliðnum, með íslenska landsliðinu, áður en hún tók sér hlé þar sem hún var barnshafandi.

Dagný er öllum hnútum kunnug hjá Selfossliðinu en hún lék 35 leiki með félaginu í deild og bikar árin 2013 til 2014 og skoraði í þeim 21 mark. Undanfarna mánuði hefur hún þjálfað yngri flokka hjá félaginu.

„Mér líst mjög vel á að vera komin aftur til liðs við Selfoss í nýja heimabænum mínum. Það er mjög mikil tilhlökkun að komast aftur í takkaskóna. Líkamlegt ástand mitt er hrikalega gott. Ég æfði vel á meðgöngunni og hef æft vel eftir fæðinguna og stefnan er sett á að mæta í takkaskónum í byrjun ágúst,“ segir Dagný.

Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Selfoss, er ánægður með liðsstyrkinn.

„Ég er mjög ánægður með að fá Dagnýju í Selfoss aftur. Við erum að fá gæðaleikmann og það vita allir hvað hún getur. Við ætlum að gera það sem við getum til þess að hún komist í sitt fyrra form og hún mun vonandi hjálpa okkur mikið í baráttunni í deildinni á lokasprettinum. Við viljum byggja þetta upp á okkar stelpum og hún er hún er ein af þeim,“ segir Alfreð.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.