WBA hefur keypt varnarmanninn Kyle Bartley frá Swansea en kaupverðið er í kringum fjórar milljónir punda.
Hinn 27 ára gamli Bartley skrifaði undir þriggja ára samning hjá WBA.
Hann er annar leikmaðurinn sem Darren Moore fær til WBA í sumar á eftir markverðinum Sam Johnstone sem kom frá Manchester United.
„Eftir að hafa rætt við Darren þá vissi ég að þetta væri staðurinn til að vera á," sagði Bartley eftir undirskrift.
Bartley mun nú reyna að hjálpa WBA að endurheimta sæti sitt í ensku úrvalsdeildinni.
Athugasemdir