Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   mán 16. júlí 2018 16:41
Magnús Már Einarsson
Madeline Keane í Grindavík (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Grindavík hefur fengið varnarmanninn Madeline Keane í sínar raðir fyrir síðari hluta sumars í Pepsi-deildinni.

Madeline þekkir til á Íslandi en hún spilaði fimm leiki með Tindastóli í næstefstu deild í fyrra.

Madeline mun nú hjálpa Grindavík í fallbaráttunni sem er framundan í Pepsi-deildinni.

Fyrsti leikur hennar gæti verið strax á morgun þegar Grindavík heimsækir topplið Þór/KA.

Draumaliðsdeild Toyota
Madeline er mætt í Draumaliðsdeild Toyota og hægt er að kaupa hana í sitt lið fyrir næstu umferð.
Smelltu hér til að taka þátt í Draumaliðsleiknum!
Athugasemdir
banner
banner
banner