Byrjunarlið FH og Víkings R: Bæði lið gera tvær breytingar - Danijel Djuric á bekknum

Danijel Dejan Djuric byrjar á bekknum hjá Víkingum

Mynd: Víkingur

Danijel Dejan Djuric byrjar á bekknum hjá Víkingum

Mynd: Víkingur
13.umferð Bestu deildar karla hefur göngu sína núna í kvöld þegar FH taka á móti Íslands og Bikarmeisturum Víkings á Kaplakrikavelli núna klukkan 18:00.
Þessi lið áttust við í opnunarleik Bestu deildarinnar þar sem gestirnir í Víking höfðu betur með tveimur mörkum gegn engu í víkinni.
Víkingar koma inn í þennan leik með á mikilli siglingu en þeir hafa unnið síðustu 5 leiki sína í röð og halda pressu á toppliði Breiðabliks en aðeins munar 6 stigum á Víkingum í 2.sæti og Blikum í því fyrsta á meðan heimamenn í FH hafa ekki fagnað sigri síðan í 6.umferð gegn ÍBV og sitja í 9.sæti deildarinnar tveim stigum frá 11.sætinu og 5 stigum frá botnsætinu.
Heimamenn í FH gera tvær breytingar á sínu liði en inn í byrjunarliðið koma Davíð Snær Jóhannsson og Vuk Oskar Dimitrijevic.
Gestirnir í Víking gera tvær breytingar á sínu liði frá síðasta leik sínum gegn Malmö en inn í liðið koma Ari Sigurpálsson og Kristall Máni Ingason.
Byrjunarlið FH
- 1. Gunnar Nielsen (m)
- 4. Ólafur Guðmundsson (f)
- 6. Eggert Gunnþór Jónsson
- 7. Steven Lennon
- 9. Matthías Vilhjálmsson (f)
- 10. Björn Daníel Sverrisson (f)
- 11. Davíð Snær Jóhannsson
- 16. Guðmundur Kristjánsson
- 22. Ástbjörn Þórðarson
- 29. Vuk Oskar Dimitrijevic
- 34. Logi Hrafn Róbertsson
Byrjunarlið Víkingur R.
- 1. Ingvar Jónsson (m)
- 3. Logi Tómasson
- 7. Erlingur Agnarsson
- 8. Viktor Örlygur Andrason
- 10. Pablo Oshan Punyed Dubon (f)
- 17. Ari Sigurpálsson
- 20. Júlíus Magnússon (f)
- 22. Karl Friðleifur Gunnarsson
- 23. Nikolaj Andreas Hansen
- 80. Kristall Máni Ingason
- 4. Oliver Ekroth (f)
