16.08.17 - 08:50
Elvar Geir Magnússon
Jese lánaður til Stoke frá PSG (Staðfest)

Mættur til Stoke.

Mynd: Getty Images

Mættur til Stoke.

Mynd: Getty Images
Stoke hefur fengið til sín Jese Rodriguez, fyrrum sóknarmann Real Madrid, á láni frá Paris St-Germain í eitt tímabil.
Þessi 24 ára leikmaður fór til Real 14 ára gamall og var hluti af hópnum sem vann Meistaradeildina 2014 og 2016.

Í ágúst í fyrra gekk hann í raðir PSG fyrir 21 milljón punda en náði bara að skora tvívegis í fjórtán leikjum áður en hann var í janúarmánuði lánaður til Las Palmas þar sem hann lék út tímabilið.
„Hann hefur ekki átt ánægjulegasta hluta ferilsins í París en hann er enn ungur maður sem er ákveðinn í að láta að sér kveða í ensku úrvalsdeildinni,\" segir Tony Scholes, framkvæmdastjóri Stoke.
Jese er sjötti leikmaðurinn sem Stoke fær til sín í glugganum.
Varnarmaðurinn Bruno Martins Indi kom á föstudaginn en einnig hefur Stoke fengið varnarmanninn Kurt Zouma lánaðan frá Chelsea auk þess sem miðjumaðurinn Darren Fletcher, varnarmaðurinn Josh Tymon og vængmaðurinn Eric Maxim Choupo-Moting komu á frjálsri sölu.
Jese spilaði 63 leiki fyrir Real, skoraði 13 mörk.