Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   fös 16. ágúst 2019 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Guillermo Ochoa snýr aftur heim (Staðfest)
Mynd: Twitter
Club America er búið að krækja í mexíkóska landsliðsmarkvörðinn Guillermo Ochoa.

Ochoa verður þar með launahæsti mexíkóski leikmaður mexíkósku deildarinnar með 4,4 milljónir bandaríkjadala í árslaun.

Hann er 34 ára og er þjóðarhetja í Mexíkó. Hann ólst upp hjá Club America og lék yfir 300 leiki á sjö árum hjá félaginu áður en hann hélt til Frakklands.

Ochoa á 106 A-landsleiki að baki en lék þó aldrei fyrir stórlið. Hann spilaði fyrir Ajaccio, Malaga, Granada og síðast var hann hjá Standard Liege í Belgíu.

Kaupverðið er ekki gefið upp en það er talið hafa verið nokkuð lágt, eða um ein milljón evra.
Athugasemdir
banner
banner
banner