West Ham er að krækja í þýska varnarmanninn Thilo Kehrer frá PSG. Hann fer í dag í læknisskoðun hjá West Ham og verður í kjölfarið kynntur sem nýr leikmaður enska félagsins.
Kehrer hefur verið á mála hjá frönsku meisturunum í fjögur ár og hefur alls spilað 128 leiki fyrir félagið.
Kehrer hefur verið á mála hjá frönsku meisturunum í fjögur ár og hefur alls spilað 128 leiki fyrir félagið.
Hann spilar oftast sem miðvörður en getur einnig spilað í báðum bakvarðarstöðunum.
West Ham hefur verið í leit að varnarmanni eftir að ljóst varða að Issa Diop færi til Fulham og að Nayef Aguerd, sem félagið keypti í sumar, yrði frá í þrjá mánuði.
Kehrer er 25 ára og steig sín fyrstu skref í meistaraflokki hjá Schalke. Hann á að baki 20 A-landsleiki fyrir Þýskaland.
Talið er að West Ham greiðir rúmlega fimmtán milljónir punda fyrir varnarmanninn.
Athugasemdir