Fotbolti.net
16.08.23 - 11:18
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Michael Jordan í ÍBV (Staðfest)

Michael Jordan í ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Caen

ÍBV hefur fengið liðsstyrk fyrir endasprettinn í Bestu deildinni. Sá heitir Michael Jordan Nkololo og getur hann bæði spilað sem sóknarsinnaður miðjumaður og framherji.

Sögur höfðu heryst af því að ÍBV ætlaði að styrkja sig í framherjastöðunni fyrir endasprettinn og er hann nú kominn.
Jordan, sem er þrítugur, er fæddur í Frakklandi en spilar með landslði Lýðstjórnarlýðveldisins Kongó (DR Congo). Hann á samkvæmt Wikipedia að baki tólf landsleiki og hefur í þeim skorað fjögur mörk.

Hann var síðast leikmaður Kyzylzhar í Kasakstan og hefur hann einnig spilað í Litháen, Úkraínu, Lettlandi, Króatíu, Rúmeníu og Frakklandi.

Hann getur spilað með ÍBV þegar liðið mætir Fylki á Hásteinsvelli á sunnudag. ÍBV er í 10. sæti deildarinnar með sautján stig, tveimur stigum meira en Fram sem er í næst neðsta sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.