Jói Kalli: Gríðarleg reynsla í Víkingsliðinu og bara þetta 'know how'

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Níu leikja taplausa hrina FH lauk í kvöld þegar FH tapaði gegn Víkingum á heimavelli í 19. umferð Bestu deild karla.
„Þetta var verðskuldaður sigur Víkinga, ég held að það sé alveg augljóst mál" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson þjálfari FH eftir tapið í kvöld.
„Ég er kannski pínu svekktur með fyrstu tvö mörkin sem að þeir skora og á tímapunktinum sem að Gylfi skorar markið sitt. Það er nátturlega frábærlega gert hjá þeim en við vorum í sókn og töpum boltanum, vinnum hann svo eiginlega aftur og töpum honum aftur"
„Þeir eru náttúrlega hörku flottir á 'transition-inu' og Gylfi sýndi ekkert eðlilega mikinn karakter, vilja og gæði í að vera fyrstur að skila sér þarna á vítapunktinn. Hleypur framhjá tveimur miðjumönnunum hjá mér og kemur sér í þessa stöðu og kemur þeim í 2-1 og það var alveg svolítið högg að vera ekki allavega með 1-1 stöðuna í hálfleik"
„Þeir eru gott lið og við vissum alveg að það yrði erfitt að halda þeim í skefjum allan leikinn og við náðum því ekki, því miður"
Hver var helsti munurinn á liðunum í kvöld?
„Það er náttúrlega gríðarleg reynsla í Víkingsliðinu og bara þetta 'know how' sem að þeir eru með til þess að vinna leiki"
„Það er náttúrlega bara gríðarlegur munur á reynslu á þessum tveimur liðum. Við erum með lang yngsta liðið í deildinni, lang yngsta meðalaldurinn og þeir eru með elsta liðið og best mannaða liðið. Þar liggur nátturlega munurinn" sagði Jóhannes Karl Guðjónsson.
Nánar er rætt við Jóhannes Karl Guðjónsson í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 22 | +46 | 53 |
| 2 | Fram | 22 | +14 | 45 |
| 3 | KR | 22 | +25 | 44 |
| 4 | Breiðablik | 22 | +2 | 30 |
| 5 | ÍA | 22 | -2 | 30 |
| 6 | Keflavík | 22 | -5 | 28 |
| 7 | Stjarnan | 22 | -8 | 28 |
| 8 | Valur | 22 | -6 | 27 |
| 9 | FH | 22 | -12 | 21 |
| 10 | Þór | 22 | -28 | 21 |
| 11 | KA | 22 | -13 | 20 |
| 12 | ÍBV | 22 | -13 | 18 |
