Fotbolti.net
16.09.16 - 16:28
Elvar Geir Magnússon

Stelpurnar okkar komnar á EM (Staðfest)

Stelpurnar okkar komnar á EM (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Kvennaboltinn
Stelpurnar okkar í íslenska kvennalandsliðinu eru komnar á Evrópumótið sem fram fer í Hollandi á næsta ári. Þetta varð ljóst eftir að Portúgal lagði Finnland 3-2 í dag.

Það er því ljóst að sama hvernig fer hjá stelpunum í síðustu leikjum undankeppninnar þá verður liðið meðal þátttökuþjóða í Hollandi.
Ísland mætir Slóveníu á Laugardalsvelli í kvöld klukkan 18:45 en íslenska liðið trónir á toppi riðils síns með fullt hús.

Smelltu hér til að fylgjast með leik kvöldsins í beinni textalýsingu

Þá hefur okkar liðið skorað 29 mörk en ekki fengið neitt á sig í sex leikjum.

Markmiðið er að klára riðilinn með fullt hús á toppi riðilsins.

Á þriðjudaginn er leikur gegn Skotlandi á Laugardalsvelli.

Til hamingju leikmenn og þjálfarar - Ísland á EM2017 í Hollandi, staðfest á https://t.co/Xw6QmswBGc @footballiceland pic.twitter.com/6zMjlw8EtY

— Geir Thorsteinsson (@FootballGeir) September 16, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.