Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 16. september 2019 09:49
Magnús Már Einarsson
Rekinn úr sjónvarpsþætti fyrir ummæli um Lukaku
Romelu Lukaku.
Romelu Lukaku.
Mynd: Getty Images
Ítalska sjónvarpsstöðin TopCalcio24 hefur rekið sérfræðing sinn Luciano Passirani úr starfi eftir ummæli sem hann lét falla um Romelu Lukaku framherja Inter um helgina.

Passirani var með kynþáttafordóma þegar hann talaði um Lukaku.

„Ef þú mætir honum einn á einn í leik þá drepur hann þig. Eina leiðin til að eiga möguleika gegn honum er kannski ef þú gefur honum 10 banana að borða...," sagði hinn 80 ára gamli Passirani í þættinum.

Passirani baðst strax afsökunar á ummælunum en hann hefur verið rekinn úr starfi.

Lukaku varð einnig fyrir kynþáttafordómum frá stuðningsmönnum Cagliari í leik á dögunum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner