Fotbolti.net
22.11.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Fékk seinna gula fyrir að taka ekki í höndina á dómaranum

Fékk seinna gula fyrir að taka ekki í höndina á dómaranum
Canon

Mynd: EPA

Okan Buruk þjálfari Galatasaray fékk seinna gula spjaldið sitt eftir leikslok í naumum sigri gegn Loga Tómassyni og félögum í liði Samsunspor í gær.
Galatasaray vann 2-1 og þegar dómarateymið gekk af velli eftir leikslok tók Buruk aðeins í höndina á aðstoðardómaranum sem var næst honum, áður en hann labbaði áfram til að taka í höndina á leikmanni.

Hann tók ekki í höndina á aðaldómara leiksins eða hinum aðstoðardómaranum, sem gerðu þó sjálfir enga tilraun til að taka í höndina á Buruk.

Þegar Buruk gekk framhjá þeim ákvað Ali Sansalan dómari að veifa gulu spjaldi að þjálfaranum, sem var hans seinna gula spjald í leiknum og þar af leiðandi rautt.

Buruk var mjög hissa og gekk á eftir dómaranum inn göngin. Varaforseti Galatasaray og aðstoðarþjálfarinn gagnrýndu ákvörðun dómarans harðlega að leikslokum, en Buruk verður í hliðarlínubanni í stórleik gegn Besiktas í næstu umferð. Galatasaray ætlar þó að áfrýja.


Fékk seinna gula fyrir að taka ekki í höndina á dómaranum
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.