Fotbolti.net
22.11.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Arteta vill halda Ödegaard í mörg ár

Arteta vill halda Ödegaard í mörg ár
Canon

Mynd: EPA

Mikel Arteta er mjög ánægður með framlag Martin Ödegaard, fyrirliða Arsenal, og vonast til að félagið semji við hann sem fyrst þar sem Norðmaðurinn er aðeins með eitt og hálft ár eftir af samningi.
Ödegaard vill vera lengi hjá Arsenal
TENGT EFNI

Ödegaard vill vera lengi hjá Arsenal

Arsenal er búið að festa Declan Rice, Jurriën Timber, David Raya og Piero Hincapié á nýja samninga og er Ödegaard meðal næstu manna sem félagið leggur forgang á að semja við.

Kai Havertz, Ben White og Mikel Merino eru meðal leikmanna sem eiga líka 18 mánuði eftir af sínum samningum en Ödegaard er í forgangi.

„Martin er svo mikilvægur leikmaður fyrir okkur. Hann hefur verið ótrúlega mikilvægur fyrir mig og fyrir félagið á undanförnum árum. Leiðin hefur bara legið upp á við frá komu hans til Arsenal. Hann býður upp á ótrúlega töfra og mikinn stöðugleika þrátt fyrir einhverja erfiða kafla," sagði Arteta.

„Þið vitið að ég tala aldrei um samningsmál leikmanna. Ég get sagt ykkur hvaða skoðun ég hef á leikmönnum en ég ræði ekki samningsmálin þeirra. Ég vil halda Martin hjá félaginu í mörg ár, það leikur ekki vafi á því."

Ödegaard er 27 ára gamall og hefur spilað yfir 250 leiki á tæpum sex árum hjá Arsenal.
Arteta vill halda Ödegaard í mörg ár
Canon

Mynd: EPA

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal11+1028
2Brighton10+1922
3Man City11+822
4Liverpool10+418
5Bournemouth11+418
6Leeds11+517
7Everton10+216
8Chelsea11016
9Tottenham11+115
10Brentford10+514
11Aston Villa11-314
12Newcastle11-313
13Coventry11-812
14Hull City10011
15Fulham11-211
16Ipswich Town11-711
17Nott. Forest11-69
18Sunderland11-99
19Man Utd10-58
20Crystal Palace11-157
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.