Fotbolti.net
16.10.16 - 15:58
Arnar Geir Halldórsson

Jón Aðalsteinn tekur við kvennaliði Fylkis (Staðfest)

Jón Aðalsteinn Kristjánsson er til hægri á þessari mynd

Jón Aðalsteinn Kristjánsson er til hægri á þessari mynd

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Knattspyrnudeild Fylkis hefur samið við Jón Aðalstein Kristjánsson um þjálfun á kvennaliði félagsins en samningurinn er til tveggja ára. Kristbjörg Ingadóttir verður honum til aðstoðar.
Jón Aðalsteinn er reynslumikill þjálfari en hann var í þjálfarateymi kvennaliðs Vals á nýafstaðinni leiktíð ásamt því að þjálfa 2.flokk kvenna hjá Val.

Hann hefur einnig þjálfað KF og Hamar í meistaraflokki karla auk þess að hafa þjálfað yngri flokka hjá fleiri liðum.

Fylkir var í miklum vandræðum í Pepsi deild kvenna á nýafstaðinni leiktíð en tókst að halda sætinu á meðal þeirra bestu með naumindum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.