Talsmaður Manchester City hefur staðfest við Mirror að argentínski sóknarmaðurinn Sergio Aguero hafi sloppið algjörlega ómeiddur úr árekstri í dag.
Aguero var að keyra Range Rover bifreið sína þegar umferðaróhappið átti sér stað.
Aguero var að keyra Range Rover bifreið sína þegar umferðaróhappið átti sér stað.
Aguero var ekki með argentínska landsliðinu í landsleikjaglugganum vegna meiðsla.
Lið Manchester City æfði ekki í dag en liðið kemur saman á morgun til að undirbúa sig fyrir útileik gegn Crystal Palace á laugardaginn. Ekki er ljóst hvort Aguero verði með í þeim leik.
City er átta stigum frá toppliði Liverpool.
Athugasemdir