Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   mið 16. október 2019 19:42
Brynjar Ingi Erluson
Lára Kristín Pedersen í KR (Staðfest)
Lára Kristín Pederseon í leik með Þ'or/KA
Lára Kristín Pederseon í leik með Þ'or/KA
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR er byrjað að styrkja sig fyrir átökin fyrir næsta tímabil en Lára Kristín Pedersen er komin til félagsins frá Þór/KA. Þetat kemur fram á vefsvæði KR á Instagram.

Lára er fædd árið 1994 og uppalin í Aftureldingu en hún spilaði með liðinu í Pepsi-deildinni til ársins 2014.

Hún samdi þá við Stjörnuna þar sem hún lék fimm tímabil áður en hún rifti samning sínum á síðasta ári.

Lára lék með Þór/KA á síðasta tímabili og spilaði alla leiki liðsins og skoraði 1 mark en er nú búin að semja við KR.

KR hafnaði í 7. sæti með 19 stig í sumar en Jóhannes Karl Sigursteinsson tók við liðinu í júlí af Bojönu Medic.
Athugasemdir
banner
banner