Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. október 2020 07:30
Victor Pálsson
Bálreiður eftir viðureign gegn Neymar - „Hann er algjör trúður
Trúður?
Trúður?
Mynd: Getty Images
Carlos Zambrano, varnarmaður Perú, hefur sent Neymar, leikmanni Paris Saint-Germain, væna pillu eftir leik Perú og Brasilíu á þriðjudag.

Neymar skoraði þrennu í 4-2 sigri Brasilíu í undankeppni HM og fiskaði einnig tvær vítaspyrnur fyrir sitt lið.

Zambrano veit af hæfileikum leikmannsins en kallar hann á sama tíma trúð sem lætur sig detta víðsvegar á vellinum.

„Ef ég á að vera hreinskilinn þá er hann frábær leikmaður og einn sá besti í heiminum en að mínu mati þá er hann algjör trúður," sagði Zambrano.

„Neymar veit af öllu sem hann gerir á vellinum, hann er frábær leikmaður en hann leitaði eftir öllum aukaspyrnum."

„Hann henti sér fjórum eða fimm sinnum niður í vítateignum til að sjá hvort hann myndi fá víti og loks náði hann markmiðinu. Þeir fengu tvö víti sem voru ekki rétt dæmd."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner