Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. október 2020 19:00
Brynjar Ingi Erluson
Lampard: Ziyech er klár
Hakim Ziyech fær líklega mínútur á morgun
Hakim Ziyech fær líklega mínútur á morgun
Mynd: Getty Images
Frank Lampard, knattspyrnustjóri Chelsea, segir að Hakim Ziyech er klár í að spila með liðinu en liðið mætir Southampton í ensku úrvalsdeildinni á morgun.

Ziyech gekk til liðs við Chelsea í sumar frá Ajax enn á þó enn eftir að spila fyrir liðið.

Sóknartengiliðurinn meiddist á undirbúningstímabilinu gegn Brighton en Lampard segir að hann gæti fengið mínútur gegn Southampton á morgun.

Edouard Mendy, markvörður liðsins, er ekki með og sömu sögu má segja af Thiago Silva.

„Mendy er ekki klár í leikinn á morgun og vonandi verður hann ekki frá lengi. Thiago Silva er í góðu standi en hann er samt ekki klár að spila útaf ferðalaginu og leiknum sem hann spilaði með Brasilíu á dögunum, þannig hann verður ekki í hóp," sagði Lampard.

„Ben Chilwell, Christian Pulisic og Hakim Ziyech eru allir í hópnum. Ziyech er ekki klár í að byrja en hann getur vonandi fengið einhverjar mínútur," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner