Fotbolti.net
29.09.26 - 21:41
Brynjar Ingi Erluson

Gylfi fær mikið lof - „Eini maðurinn þarna sem kann að vinna landsleiki“

Gylfi átti frábæran leik

Gylfi átti frábæran leik

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Eimskip
Gylfi Þór Sigurðsson, markahæsti leikmaður í sögu íslenska karlalandsliðsins, fékk mikið lof frá spekingum Sýnar eftir frammistöðuna í 3-0 sigrinum á Lúxemborg í Þjóðadeildinni í kvöld.
Einkunnir Íslands - Léttleikandi lúxus
TENGT EFNI

Einkunnir Íslands - Léttleikandi lúxus

Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Gylfi og Ísak Bergmann Jóhannesson stjórnuðu miðsvæðinu og unnu mikið af boltum.

Fótbolti.net gaf Gylfa 8 fyrir frammistöðuna. „Sýndi að gæði eru varanleg, algjör kjölfesta á miðjunni. Fyrirgjafirnar úr föstum leikatriðum upp á tíu og náði að leysa vel úr pressu Lúxemborgar. Tók 90 mínútur í þokkabót,“ var skrifað í einkunnagjöfinni um Gylfa.

Kári Árnason var ánægður með að fá hann inn í leikinn og segir hann gegna mikilvægu hlutverki.

„100% og það er ástæðan fyrir að hann á að vera í liðinu. Hann setur standard fyrir aðra og nóg að hafa einhvern sem er að skipuleggja og segja mönnum til, hjálpa þeim í þessu í staðinn fyrir að leyfa þeim að 'roam free'. Eins og Aron kom inn á í hálfleik þá er allt önnur holning á þessu.“

„Það sem gleymist í þessari umræðu er að hann er eini maðurinn þarna inn á sem kann að vinna landsleiki. Það er eitt að vinna einn og einn leik fram og til baka, en raunverulega hvað þarf til að stöðugt vinna leiki og þessi stóru lið. Hann er að hjálpa þeim með að gera það.“

„Það er þrennt í þessu: Hákon fær að spila framar, sem hentar honum betur, meira í boltanum og betra að hann sé að hlaupa með hann á þessu svæði heldur en af miðjunni og opna hana. Gylfi heldur allan leikinn og Ísak líka. Hann heldur í höndina á Gylfa og stjórna miðjunni algerlega. Vinna helling af boltum og setja hraðar sóknir af stað, Hákon fær mikið af boltum og það hentar okkur betur að spila við lið sem er að reyna að spila honum út frá marki frekar en lágblokk lið sem er að þrykkja honum fram,“
sagði Kári.

Aron Elís Þrándarson, liðsfélagi Gylfa hjá Víkingi, var spurður hvort Gylfi væri mikill leiðtogi og hávær inni á vellinum og tók Aron undir það.

„Klárlega, innan sem utan vallar. Hann krefst þess að menn séu með gríðarlegan standard. Það sést þegar hann kemur þarna inn, kemur með yfirvegun í okkar leik,“ sagði Aron um Gylfa.
Gylfi fær mikið lof - „Eini maðurinn þarna sem kann að vinna landsleiki“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.