Fotbolti.net
29.09.26 - 22:26
Kári Snorrason

Orri: Náði ekkert að pæla í markinu eftir þessa sendingu

Auglýsing
Orri: Náði ekkert að pæla í markinu eftir þessa sendingu
Canon

Mynd: KSÍ

Eimskip
„Þetta var einmitt það sem við sóttumst eftir komandi inn í leikinn,“ sagði landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson eftir 3-0 sigur liðsins á Lúxemborg fyrr í kvöld.

Orri og Andri Lucas Guðjohnsen tengdu vel saman í fremstu línu Íslands og lögðu þeir báðir upp á hvorn annan.

„Það er ógeðslega gaman að spila saman - við erum hlæjandi eftir mörkin. Ég held að það sé lykillinn í þessu öllu. Við höfum átt góðar minningar saman á vellinum og við reynum að halda í það,“ segir Orri aðspurður um tengingu hans við Andra.
Lestu um leikinn: Lúxemborg 0 - 3 Ísland
Markið hjá Orra var úr efstu hillu þar sem Andri Lucas átti laglega hælsendingu og þræddi Orra í gegn.

„Þetta var alvöru stoðsending hjá Andra. Ég náði ekkert að pæla í markinu eftir þessa sendingu. Þetta var mjög gott mark, við sáum hvað línan þeirra var há og tókum djúp hlaup til þess að refsa þeim. Það gekk mjög vel,“ sagði Orri.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.