Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 16. október 2020 13:30
Magnús Már Einarsson
Mane og Thiago klárir eftir veiruna - Keita ekki með
Naby Keita er meiddur.
Naby Keita er meiddur.
Mynd: Getty Images
Sadio Mane og Thiago Alcantara eru báðir klárir í slaginn á nýjan leik eftir að hafa fengið kórónuveiruna á dögunum. Báðir leikmennirnir verða með Liverpool í grannaslagnum gegn Everton á morgun.

„Við skoðum þá á hverjum degi og erum með sérstakar ráðstafanir ef þeir eru þreyttari en vanalega. Þeir líta vel út. Við myndum aldrei taka áhættu með þá. Þeir eru klárir," sagði Jurgen Klopp, stjóri Liverpool.

Miðjumaðurinn Naby Keita verður ekki með í leiknum á morgun vegna meiðsla.

Brasilíski markvörðurinn Alisson er ennþá meiddur og því verður Adrian í markinu líkt og í 7-2 tapinu gegn Aston Villa í síðustu umferð.
Athugasemdir
banner
banner