Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   lau 16. október 2021 11:51
Brynjar Ingi Erluson
Sjáðu markið: Geggjuð utanfótarsending Salah á Mane
Sadio Mane skoraði eftir glæsilega sendingu frá Mohamed Salah
Sadio Mane skoraði eftir glæsilega sendingu frá Mohamed Salah
Mynd: EPA
Liverpool er komið 1-0 yfir gegn Watford í hádegisleiknum í 8. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag. Sadio Mane gerði markið eftir stórkostlega sendingu frá Mohamed Salah.

Salah fékk boltann hægra megin á vellinum og sá að Mane var byrjaður að hlaupa í átt að teignum. Egypski sóknarmaðurinn átti fallega utanfótarsendingu fyrir markið sem hafnaði hjá Mane og skoraði hann örugglega framhjá Ben Foster í markinu.

Glæsileg stoðsending hjá Salah og má sjá markið hér fyrir neðan.

Sjáðu markið hér
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner