Fotbolti.net
29.09.26 - 12:30
Elvar Geir Magnússon

Formaður dómarasamtaka Tyrklands handtekinn

Frá höfuðstöðvum fótboltasambands Tyrklands.

Frá höfuðstöðvum fótboltasambands Tyrklands.

Canon

Mynd: EPA

Yfirmaður samtaka dómara Tyrklands hefur verið handtekinn í tengslum við lögreglurannsókn á spillingu.

Akin Gurlek, dómsmálaráðherra Tyrklands, segir rannsóknina beinast að ásökunum um afskipti af niðurröðun dómara og prófunum á dómurum.
Skandall í dómaramálum í Tyrklandi - Hafði Mourinho eitthvað til síns máls?
TENGT EFNI

Skandall í dómaramálum í Tyrklandi - Hafði Mourinho eitthvað til síns máls?

Ferhat Gundogdu, formaður dómarasamtakanna, hefur verið handtekinn ásamt varaformanninum og fimm öðrum einstaklingum.

Gurlek segir lögreglu einnig hafa framkvæmt húsleitir á heimilum, vinnustöðum og skrifstofum.

„Við munum af festu halda áfram baráttunni fyrir hreinsun í fótboltanum og þeir sem beri ábyrgð á spillingu verði dregnir til ábyrgðar," segir Gurlek.

Í nóvember 2025 setti tyrkneska sambandið 149 dómara og aðstoðardómara í bann eftir að rannsókn leiddi í ljós að hundruð atvinnudómara í landinu væru með veðmálareikninga. Um 29 manns voru handteknir í tengslum við þetta umfangsmikla hneykslismál, þar á meðal 14 leikmenn.
Formaður dómarasamtaka Tyrklands handtekinn
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.