29.09.26 - 13:03
Elvar Geir Magnússon
Höddi Magg segir farið mjúkum höndum um Arnar - „Við þurfum að gera kröfur“

Arnar Gunnlaugsson.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Hörður Magnússon að störfum fyrir RÚV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hörður Magnússon íþróttafréttamaður segir að Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari fái afslátt í umræðunni hjá sparkspekingum. Nafni hans Arnar Þór Viðarsson hafi fengið mun harðari útreið þrátt fyrir að árangur hans hafi verið svipaður.
Eftir jafntefli gegn Eistlandi síðasta laugardag er sæti Arnars orðið heitt en framþróunin hjá liðinu hefur ekki gengið eins vel og vonast var eftir.

TENGT EFNI
Hvar stendur Arnar gagnvart öðrum landsliðsþjálfurum?
„Það er auðvitað starf landsliðsþjálfarans að setja upp leikplan og ná því besta út úr leikmönnum. Það er vissulega bara einn leikur af fjórum búinn í þessum glugga en þetta er ekkert nýtt finnst mér á hans ferli sem landsliðsþjálfari," sagði Hörður í hádegisfréttum RÚV.
„Arnar er með þrjá sigra í sextán leikjum, hann er auðvitað vinsæll og opinn karakter og það hjálpar honum mikið í umræðunni. Það er farið nokkuð mjúkum höndum um hann, annað en þegar Arnar Þór Viðarsson var til dæmis með landsliðið og álitsgjafar hökkuðu hann í spað og vildu reka hann í beinni útsendingu."
„Við þurfum að gera kröfur, við erum með hörkuöfluga leikmenn og það þarf að fá það besta út úr þessum leikmönnum. Árangurinn hingað til er bara mjög svipaður og þegar Arnar Þór Viðarsson var með liðið. Betur má ef duga skal."
Arnar Gunnlaugsson er með lægra sigurhlutfall en Arnar Þór Viðarsson var með sem landsliðsþjálfari. Ísland heimsækir Lúxemborg og býst Hörður við íslenskum sigri.
„Við erum sterkasta liðið í þessum riðli," segir Hörður Magnússon sem spáir 2-0 útisigri.

Heimild: RÚV

Hörður Magnússon að störfum fyrir RÚV.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð