Fotbolti.net
29.09.26 - 13:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Leggur líklega skóna á hilluna eftir tímabilið

Giroud hefur átt mjög farsælan feril.

Giroud hefur átt mjög farsælan feril.

Canon

Mynd: EPA

Olivier Giroud er líklega að spila sitt síðasta tímabil sem atvinnumaður í fótbolta.

Franski framherjinn, sem verður fertugur á morgun, leikur með Lille en gaf í samtali við L'Équipe í skyn að hann muni leggja skóna á hilluna næsta sumar.
„Sem leikmaður er þetta mjög líklega síðasta tímabilið mitt. Þess vegna reyni ég að njóta hverrar stundar,“ sagði Giroud.

„Ég er sáttur við sjálfan mig og allt sem ég hef gert á ferlinum.“

Giroud á að baki feril hjá Montpellier, Arsenal, Chelsea, AC Milan, Los Angeles FC og Lille. Hann hefur einnig verið einn öflugasti framherji í sögu franska landsliðsins og er næstmarkahæsti leikmaður þess frá upphafi með 57 mörk.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.