Fotbolti.net
16.11.12 - 17:32
Elvar Geir Magnússon

Þórður Birgisson í ÍA (Staðfest)

Þórður Birgisson í ÍA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Skagamenn voru rétt í þessu að ganga frá tveggja ára samning við sóknarmanninn Þórð Birgisson en hann kemur úr röðum KF þar sem hann hefur leikið undanfarin ár við góðan orðstír.
Þórður sem er 29 ára gamall, lék stórt hlutverk með liði KF í sumar og var einn af lykilmönnum félagsins sem hjálpaði liðinu að komast upp í 1. deild en hann var skoraði 18 mörk í 20 leikjum.

Þórður er ekki með öllu ókunnugur á Skaganum þar sem hann lék einmitt með félaginu um þriggja ára skeið á tímabilinu 2002-2004. Samtals hefur Þórður leikið um 182 leiki á ferlinum með áðurgreindum liðum og skorað í þeim 76 mörk.

„Ég er virkilega ánægður að vera búinn að skrifa undir hjá Skagamönnum og í senn mjög stoltur að geta fengið tækifæri til að klæðast gulu treyjunni á ný. Það felst einnig í þessu mikil áskorun fyrir mig að fá að spreyta mig á hærra leveli en ég ætla mér að æfa eins og skepna í vetur og svo sjáum við hvert það skilar okkur,\" sagði Þórður við vefsíðu ÍA.

„Ég er því bara spenntur fyrir framhaldinu og ég tel mig mig fullfæran um að geta spjarað mig í efstu deild, annars væri ég ekki að taka þetta skref. Ég þekki það frá fyrri tíð að hér á Skaganum ríkir mikil knattspyrnuhefð og metnaður svo ég er meðvitaður um pressuna sem fylgir því að klæðast gulu treyjunni - en það er bara áskorun sem ég hlakka mikið til að takast á við.“

Aðspurður hvort Þórður hefði verið í viðræðum við önnur lið sagði sóknarmaðurinn:

„Það voru einhverjar þreyfingar í gangi og ég vissi af áhuga nokkurra félaga en um leið og ég fann fyrir áhuga Skagamanna þá var þetta aldrei spurning í mínum huga. Ég þekki vel til á Skaganaum enda lék ég með félaginu í nokkur ár á sínum tíma og ég veit því að hverju ég geng. Öll aðstaða þar er til mikillar fyrirmyndar og ég sé því bara fram á spennandi tíma.“

Þórður býr á höfuðborgarsvæðinu þar sem hann stundar mastersnám auk þess sem hann stundar vinnu samhliða náminu. Hann mun því keyra á milli á æfingar og verða í samfloti með þeim leikmönnum sem búa á höfuðborgarsvæðinu:

„Við Kári Ársæls komum til með að keyra saman á æfingar í vetur, ég kvíði því ekkert, þetta er nú bara rétt rúmlega 30 mín akstur aðra leiðina svo það verður ekkert mál. Ég mun mæta á mínu fyrstu æfingu með Skagaliðinu í dag og svo er auðvitað leikur á morgun gegn Stjörnunni sem ég vonast eftir að fá að taka þátt í þar sem ég get hreinlega ekki beðið eftir að byrja að spila aftur með Skagaliðinu.“ sagði Þórður Birgisson að lokum í samtali við vefsíðu KFÍA.

Heimild: KFÍA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.