16.11.16 - 14:22
Ívan Guðjón Baldursson
Barcelona gerir risasamning við Rakuten (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Japanska fyrirtækið Rakuten er búið gera samning við Barcelona og mun auglýsa sig á treyjum félagsins næstu fjögur árin.
Rakuten greiða um 200 milljónir punda fyrir auglýsinguna sem tekur við af auglýsingu Qatar Airways, sem hefur verið stærsta auglýsingin framan á treyjum Börsunga síðan 2011.

Auglýsing Rakuten fer á treyjur Barcelona, en líklegt er að Qatar Airways auglýsi sig á æfingagöllum félagsins í staðinn.
„Við erum mjög ánægðir með að hafa gert þennan samning við Rakuten, sem er heimsfrægt fyrirtæki. Allir innan félagsins eru spenntir fyrir miklu og nánu samstarfi við japanska fyrirtækið í nánustu framtíð,\" sagði Josep Bartomeu, forseti Barcelona.