Fotbolti.net
16.11.16 - 13:15
Ívan Guðjón Baldursson

Fjalar Örn kominn til Njarðvíkur (Staðfest)

Fjalar Örn kominn til Njarðvíkur (Staðfest)
Canon

Mynd: Raggi Óla

Hinn 22 ára gamli Fjalar Örn Sigurðsson er búinn að skrifa undir samning við Njarðvík og leikur með félaginu á næsta ári.

Fjalar Örn er uppalinn á Akranesi og lék 5 leiki fyrir ÍA í Pepsi-deildinni árið 2012, aðeins 18 ára gamall.
Fjalari hefur aldrei tekist að leika meira en tíu keppnisleiki á sama tímabili, en undanfarin ár hefur hann verið hjá Kára og gert þar 15 mörk í 20 leikjum.

Fjalar á tvo leiki að baki í 1. deild karla, einn fyrir ÍA og einn fyrir Selfoss, og hefur gengið vel að skora með Kára í 3. deildinni.

Heimild: Vefsíða Njarðvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.