16.11.16 - 10:48
Ívan Guðjón Baldursson
Marcus Solberg framlengir við Fjölni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Danski sóknarmaðurinn Marcus Solberg Mathiasen er búinn að framlengja samning sinn við Fjölni.
Marcus skoraði fimm mörk fyrir Fjölni í sumar og kom við sögu í öllum leikjum liðsins í Pepsi-deildinni.

Hann skrifar undir eins árs framlengingu og er því samningsbundinn Grafarvogsfélaginu út næsta tímabil.
Marcus er aðeins 21 árs gamall og á um 30 leiki að baki fyrir yngri landslið Dana, þar á meðal tvo leiki fyrir U21 árs liðið.
Fjölnir átti mjög gott tímabil í sumar en rétt missti af Evrópusæti eftir tapleiki í lokaumferðunum gegn KR og Stjörnunni, sem enduðu bæði í Evrópusætum.