Zidane hefur augastað á Man Utd - Guimaraes áfram hjá Newcastle - Bayern hefur ekki rætt við Rangnick
   fös 16. nóvember 2018 16:21
Arnar Helgi Magnússon
Atli Guðna áfram í FH (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Atli Guðnason skrifaði í dag undir eins árs framlengingu á samning sínum við FH. Þetta kemur fram á Twitter reikning FH-inga.

Mikil óvissa ríkti með framtíð Atla eftir tímabilið en hann var samningslaus.

Atli kom við sögu í tuttugu leikjum FH í Pepsideildinni í sumar og skoraði hann í þeim tvö mörk. Hann lék fjóra leiki í Mjólkurbikarnum og gerði þrjú mörk þar.

Atli hefur leikið 343 meistaraflokksleiki fyrir FH og skorað í þeim 89 mörk.

„Atli Guðna er án nokkurs vafa besti leikmaður félagsins og minn besti samherji 'by a mile, " sagði Atli Viðar Björnsson, leikmaður FH um liðsfélaga sinn í heimildarþáttum sem gerðir voru um Atla Viðar.



Athugasemdir
banner
banner
banner
banner