Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   mið 16. nóvember 2022 23:30
Ívan Guðjón Baldursson
Demichelis tekinn við River Plate (Staðfest)
Demichelis verður 42 ára í desember.
Demichelis verður 42 ára í desember.
Mynd: Getty Images

River Plate er búið að staðfesta ráðninguna á Martín Demichelis sem arftaka Marcelo Gallardo hjá félaginu.


Gallardo hefur stýrt félaginu síðastliðin átta ár við góðan orðstír og segir að nú sé kominn tími fyrir sig til að taka sér smá frí frá vinnu.

Það verður áhugavert að fylgjast með Demichelis sem ætti að vera lesendum kunnur eftir dvöl sína hjá Manchester City frá 2013 til 2016, en þar áður var hann hjá FC Bayern og Malaga.

Demichelis var öflugur miðvörður og spilaði 51 landsleik fyrir Argentínu. Hann hóf ferilinn hjá River Plate áður en hann hélt til Evrópu og er goðsögn hjá félaginu.

Demichelis, sem hefur verið aðstoðarþjálfari hjá Malaga og stýrt U19 liðinu og svo varaliðinu hjá FC Bayern undanfarin ár, skrifar undir þriggja ára samning við River sem gildir til vetursins 2025.


Athugasemdir
banner
banner
banner