Fotbolti.net
16.12.19 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson

Aron Sigurðarson farinn til Belgíu (Staðfest)

Aron Sigurðarson farinn til Belgíu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Aron Sigurðarson er búinn að skrifa undir samning við belgíska B-deildarliðið Royale Union Saint-Gilloise eftir að hafa verið lykilmaður í liði IK Start í norsku B-deildinni.
St. Gilloise er í toppbaráttunni í B-deildinni, aðeins fimm stigum frá toppsætinu og með leik til góða. Aron verður ekki eini Íslendingurinn í belgísku B-deildinni því Kolbeinn Þórðarson er á mála hjá fallbaráttuliði Lommel.

Aron gekk til liðs við Start í fyrra og féll með liðinu úr efstu deild. Í ár var hann algjör lykilmaður er Start komst aftur upp. Aron skoraði 13 mörk í 30 deildarleikjum, yfirleitt spilandi á vinstri kanti.

Hann skoraði svo bæði mörk Start í 2-1 sigri á Lilleström í umspilinu um sæti í efstu deild og var valinn leikmaður ársins í B-deildinni.

„Aron gaf allt til að hjálpa okkur upp og okkur fannst sanngjarnt að leyfa honum að fara og grípa tækifæri í öðru landi. Við erum stoltir af áhuga frá erlendum félögum á leikmönnum okkar," sagði Tor-Kristian Karlsen, þjálfari Start.

Guðmundur Andri Tryggvason, sonur Tryggva Guðmundssonar, er hjá Start.

Mörk Arons á árinu má sjá hér fyrir neðan.

Heimild: IK Start

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.