16.12.19 - 19:20
Ívan Guðjón Baldursson
Leverkusen búið að festa kaup á Exequiel Palacios (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Bayer Leverkusen er búið að staðfesta kaup á argentínska miðjumanninum Exequiel Palacios.
Palacios er aðeins 21 árs gamall en á fjóra A-landsleiki að baki auk 13 leikja með yngri landsliðunum. Hann kemur frá River Plate þar sem hann hefur verið lykilmaður í ár.
Palacios skrifar undir fimm ára samning við Leverkusen og borgar þýska félagið aðeins 15 milljónir evra fyrir hann vegna riftunarákvæðis í samningnum við River Plate. Hann verður gjaldgengur til að spila fyrir Leverkusen þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Real Madrid sýndi Palacios áhuga fyrr á árinu en ekkert varð úr því. Fleiri stórlið, á borð við PSG og Man City, voru áhugasöm þar til ungstirnið meiddist á hné og var frá í tvo mánuði.
„Hann er nægilega góður til að spila fyrir stórt félag í Evrópu," segir Marcelo Gallardo, þjálfari River.

🚨 TRANSFER NEWS 🚨
— Bayer 04 Leverkusen (@bayer04_en) December 16, 2019
Exequiel Palacios will join the Werkself in January on a five-year deal! pic.twitter.com/H3jZyKFXf7