Kovac orðaður við stjórastól Liverpool - Newcastle vill Gibbs-White - Dewsbury-Hall orðaður við Tottenham
   mán 16. desember 2019 11:21
Magnús Már Einarsson
Meistaradeildin: Liverpool mætir Atletico - Real Madrid á móti Man City
Ríkjandi meistarar Liverpool mæta Atletico Madrid.
Ríkjandi meistarar Liverpool mæta Atletico Madrid.
Mynd: Getty Images
Nú rétt í þessu var dregið í 16-liða úrslit í Meistaradeild Evrópu. Real Madrid og Manchester City mætast þar í risaslag. Núverandi meistarar í Liverpool mæta Atletico Madrid en þeir unnu einmitt Tottenham í úrslitaleiknum á heimavelli Atletico í júní síðastliðnum.

Chelsea og Bayern mætast í öðrum risaslag en þessi lið léku til úrslita í Meistaradeildinni árið 2012.

Thomas Tuchel, þjálfari PSG, fer á kunnulegar slóðir en hann mætir sínum gömlu félögum í Dortmund. Tottenham mætir þýska liðinu Leipzig og Napoli og Barcelona eigast við í áhugaverðum slag.

16-liða úrslit
Borussia Dortmund - PSG
Real Madrid - Manchester City
Atletico Madrid - Liverpool
Chelsea - Bayern Munchen
Atalanta - Valencia
Lyon - Juventus
Tottenham - Leipzig
Napoli - Barcelona

Fyrri leikirnir fara fram 18, 19, 25, og 26. febrúar. Síðari leikirnir fara fram 10, 11, 17 og 18. mars.
Athugasemdir
banner
banner
banner