Fotbolti.net
16.12.19 - 20:47
Ívan Guðjón Baldursson

Oskar Wasilewski kominn í Aftureldingu (Staðfest)

Oskar Wasilewski kominn í Aftureldingu (Staðfest)
Canon

Mynd: Mosfellingur - Raggi Óla

Varnarmaðurinn efnilegi Oskar Wasilewski er búinn að skrifa undir samning við Aftureldingu.
Oskar á tólf keppnisleiki að baki með meistaraflokki Kára. Hann er uppalinn Skagamaður og gengur til liðs við Aftureldingu frá ÍA.

Hann var fyrirliði 2. flokks ÍA sem varð Íslandsmeistari í sumar og verður áhugavert að sjá hvernig hann tekst á við nýja áskorun.

Oskar getur spilað sem miðvörður og bakvörður og mun berjast um byrjunarliðssæti hjá Mosfellingum í Inkasso-deildinni á næsta ári.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.