17.01.17 - 16:32
Elvar Geir Magnússon
Tom Carroll í Swansea (Staðfest)

Tom Carroll er mættur til Swansea.

Mynd: Getty Images

Tom Carroll er mættur til Swansea.

Mynd: Getty Images
Swansea City gekk í dag frá kaupum á miðjumanninum Tom Carroll frá Tottenham en kaupverðið er 4,5 milljónir punda.
Paul Clement er að styrkja sinn leikmannahóp fyrir erfiða fallbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar.

Carroll þekkir vel til á Libery leikvanginum en hann lék þrettán leiki fyrir liðið á lánssamningi 2014/15.
Þessi 24 ára leikmaður kemur úr unglingastarfi Tottenham en hefur aðeins spilað 24 deildarleiki fyrir aðalliðið síðan hann skrifaði undir atvinnumannasamning fyrir sjö árum.
Swansea er á botni deildarinnar og varnarleikurinn hefur verið hriplekur. Liðið mætir Liverpool á Anfield á laugardaginn og verður Carroll löglegur fyrir þann leik.
Fyrr í dag tryggði Swansea sér þjónustu Martin Olsson, sænska bakvörðinn frá Norwich. Eins og allir vita leikur íþróttamaður ársins 2016, Gylfi Þór Sigurðsson, með Swansea.