Fotbolti.net
17.01.20 - 18:00
Ívan Guðjón Baldursson

Bojana ráðin í þjálfarateymi Þórs/KA (Staðfest)

Bojana ráðin í þjálfarateymi Þórs/KA (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Bojana Besic hefur verið ráðin í þjálfarateymið hjá Þór/KA og Hömrunum. Hún mun einnig koma að barna- og unglingastarfi KA.
Bojana, 39 ára, spilaði fyrir Þór/KA í fjögur ár og var einnig partur af þjálfarateyminu þegar félagið fagnaði sínum fyrsta Íslandsmeistaratitli 2012.

Árið 2014 gekk Bojana til liðs við KR og starfaði þar í nokkur ár bæði sem leikmaður og þjálfari.

„Það þarf ekki að fara mörgum orðum um hversu mikilvægt það er að fá jafn reynslumikla manneskju og Bojönu inn í þjálfarateymi Þórs/KA og Hamranna," segir á vefsíðu Þórs.

„Bojana kemur til starfa síðar í þessum mánuði. Bjóðum Bojönu velkomna heim."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.