Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 17. janúar 2020 20:40
Ívan Guðjón Baldursson
Fótbolta.net mótið: Afturelding skoraði sex gegn Selfossi
Jason Daði setti þrennu.
Jason Daði setti þrennu.
Mynd: Raggi Óla
Afturelding 6 - 2 Selfoss
Mörk Aftureldingar:
Jason Daði Svanþórsson, 3 mörk
Kári Steinn Hlífarsson, 2 mörk
Andri Freyr Jónasson

Mörk Selfoss:
Ingi Rafn Ingibergsson, 2 mörk

Afturelding gjörsamlega valtaði yfir Selfoss er liðin mættust í B-deild Fótbolta.net mótsins.

Leikið var á gervigrasvellinum við Varmá í þéttri snjókomu. Heimamenn létu veðrið ekki á sig fá og skoruðu sex mörk á móti tveimur.

Jason Daði Svanþórsson skoraði þrennu fyrir heimamenn, Kári Steinn Hlífarsson setti tvennu og gerði Andri Freyr Jónasson eitt.

Ingi Rafn Ingibergsson gerði bæði mörk Selfyssinga í leiknum.

Afturelding er með sex stig eftir tvær umferðir á meðan Selfoss er stigalaust. Njarðvík og Víkingur Ólafsvík eru einnig í riðlinum.
Athugasemdir
banner
banner
banner