Fotbolti.net
17.01.20 - 20:00
Elvar Geir Magnússon

Ismaila Soro til Celtic (Staðfest)

Lennon, stjóri Celtic.

Lennon, stjóri Celtic.

Canon

Mynd: Getty Images

Neil Lennon, stjóri Celtic, hefur staðfest að búið sé að ná samkomulagi um kaup á Ismaila Soro.

Þessi 21 árs Fílabeinsstrendingur kemur frá Bnei Yehuda í Ísrael.
„Hann er sterkur, tæknilega öflugur, kvikur um völlinn og hungraður," segir Neil Lennon.

Soro er miðjumaður og er annar leikmaðurinn sem Celtic fær í janúarglugganum, áður hafði félagið krækt í pólska sóknarmanninn Patryk Klimala.

Celtic trónir á toppi skosku úrvalsdeildarinnar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.