Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 17. janúar 2020 22:26
Ívan Guðjón Baldursson
Magni fær þrjá nýja leikmenn (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni er búinn að semja við þrjá leikmenn fyrir komandi átök í Inkasso-deild karla.

Tómas Örn Arnarson kemur að láni frá Þór. Hann er tvítugur og á sex leiki að baki með Þór í Inkasso-deildinni.

Þá eru tvíburarnir Rúnar Þór og Ágúst Þór Brynjarssynir búnir að skrifa undir tveggja ára samning við félagið.

Bræðurnir eru tvítugir. Rúnar á 23 leiki að baki fyrir Völsung á meðan Ágúst á þrjá leiki fyrir Völsung, einn fyrir Þór og níu fyrir ÍR.

Magni rétt bjargaði sér frá falli með því að ná í sjö stig úr síðustu þremur umferðum síðasta tímabils.


Athugasemdir
banner
banner