Breki Ómarsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við ÍBV sem gildir út tímabilið 2022.
Breki er sóknarmaður fæddur 1998. Hann er uppalinn Eyjamaður og á 30 keppnisleiki að baki með meistaraflokki ÍBV.
Breki spilaði aðeins sex leiki í Lengjudeildinni í fyrra vegna meiðsla sem hrjáðu hann framan af sumri en endaði tímabilið vel.
„Knattspyrnuráð er ánægð með að hafa tryggt sér þjónustu Breka næstu tvö árin og óskar honum til hamingju með samninginn. Áfram ÍBV!" segir á vefsíðu ÍBV.
ÍBV stefnir upp úr Lengjudeildinni í ár eftir að hafa mistekist að fara upp í fyrra.
Athugasemdir