Wayne Rooney stýrði Derby County í fyrsta sinn í gær eftir að hafa verið ráðinn sem knattspyrnustjóri félagsins á dögunum.
Rooney lagði skóna á hilluna fyrir helgi og tók við stjónartaumunum hjá Derby. Í gær átti liðið svo heimaleik við Rotherham sem tapaðist 0-1 og sat Rooney fyrir spurningum að leikslokum.
„Rotherham börðust meira en við í dag. Við vorum ekki nógu góðir á boltanum og ég tók eftir einbeitingarskorti hjá leikmönnum. Það er mjög svekkjandi og ef ég á að tala hreint út þá fannst mér við ekki eiga skilið að fá neitt úr þessum leik," sagði Rooney.
„Auðvitað hafa síðustu vikur verið erfiðar í undirbúningi vegna Covid en það er ekki afsökun fyrir þessu tapi. Strákarnir hafa litið vel út á æfingum síðustu daga en okkur vantaði einfaldlega meiri gæði á boltanum gegn pressuglöðum andstæðingum.
„Ég skil að leikmenn geta gert mistök. Vonandi svörum við þessum á réttan hátt."
Derby hefur ekki gengið vel á tímabilinu hingað til og er liðið í fallsæti með 19 stig eftir 23 umferðir.
Athugasemdir