17.01.25 - 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England um helgina - Liverpool heimsækir Brentford á morgun

Mynd: EPA

Mynd: EPA
22. umferð í ensku úrvalsdeildinni hefst í hádeginu á morgun þegar Newcastle fær Bournemouth í heimsókn.
Þar mætast tvö sjóðandi heit lið en Newcastle hefur unnið átta leiki í röð og Bournemouth ekki tapað í síðustu níu leikjum. Brentford fær Liverpool í heimsókn, topplið Liverpool hefur gert tvö jafntefli í röð en Brentford náði í gott stig gegn Man City í síðustu umferð.
Arsenal má ekki við því að tapa stigum í toppbaráttunni og Aston Villa er í hörku Evrópubaráttu, liðin eigast við á Emirates seinni partinn á morgun.
Everton fær Tottenham í heimsókn en Ange Postecoglou situr í ansi heitu sæti. Man Utd hefur ekki verið sannfærandi undir stjórn Ruben Amorim en liðið vann endurkomusigur gegn botnliði Southampton í gær. Liðið fær Brighton í heimsókn sem lagði Ipswich einnig í gær.
Ipswich fær Man City í heimsókn sem heldur áfram að ströggla í deildinni. Umferðinni lýkur á mánudagskvöldið með leik Chelsea og Wolves.

laugardagur 18. janúar
12:30 Newcastle - Bournemouth
15:00 Brentford - Liverpool
15:00 Leicester - Fulham
15:00 West Ham - Crystal Palace
17:30 Arsenal - Aston Villa
sunnudagur 19. janúar
14:00 Everton - Tottenham
14:00 Man Utd - Brighton
14:00 Nott. Forest - Southampton
16:30 Ipswich Town - Man City
mánudagur 20. janúar
20:00 Chelsea - Wolves
12:30 Newcastle - Bournemouth
15:00 Brentford - Liverpool
15:00 Leicester - Fulham
15:00 West Ham - Crystal Palace
17:30 Arsenal - Aston Villa
sunnudagur 19. janúar
14:00 Everton - Tottenham
14:00 Man Utd - Brighton
14:00 Nott. Forest - Southampton
16:30 Ipswich Town - Man City
mánudagur 20. janúar
20:00 Chelsea - Wolves
Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 6 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 7 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 8 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 9 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 10 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 11 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Newcastle | 8 | -2 | 11 |
| 13 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 14 | Everton | 8 | -1 | 10 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 9 | -7 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |