Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   mið 17. febrúar 2021 17:54
Ívan Guðjón Baldursson
Elfar Ísak í Selfoss (Staðfest)
Mynd: Selfoss
Táningurinn Elfar Ísak Halldórsson er genginn í raðir Selfyssinga eftir tvö ár hjá Ægi í Þorlákshöfn.

Elfar er miðvörður fæddur 2002 sem er uppalinn hjá Selfossi en á ekki leiki að baki fyrir meistaraflokk.

Hann er fenginn til að auka breiddina hjá Selfyssingum fyrir komandi átök í Lengjudeildinni eftir að liðið komst upp um deild í fyrra.

„Velkominn heim Elfar!" segir í yfirlýsingu frá Selfoss.

Elfar var partur af liði Ægis sem fór upp úr 4. deild fyrir tveimur árum.
Athugasemdir
banner