Huginn hefur samið við króatíska leikmanninn Ivan Eres fyrir átökin í 2. deild karla í sumar.
Ivan getur spilað sem kantmaður og sóknarmaður.
Hann er bróðir Nedo Eres sem kom til Hugins frá Sindra í vetur. Nedo spilar í svipaðri stöðu og bróðir sinn, hann er kantmaður og leikmaður sem getur líka verið í fremstu víglínu.
Nedo skoraði átta mörk í 23 deildar og bikarleikjum þegar Sindri féll úr 2. deildinni í fyrra.

Nú er spurning hvernig Ivan, sem er fæddur árið 1996, mun vegna á Seyðisfirði í sumar.
Huginn endaði í fimmta sæti 2. deildarinnar á síðasta tímabili en fyrsti leikur liðsins í sumar verður gegn Þrótti Vogum á útivelli þann 5. maí næstkomandi.
Athugasemdir