Fotbolti.net
17.04.18 - 16:40
Magnús Már Einarsson

Tómas Joð í KFG (Staðfest)

Tómas Joð Þorsteinsson.

Tómas Joð Þorsteinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KFG hefur fengið vinstri bakvörðinn Tómas Joð Þorsteinsson til liðs við sig fyrir átökin í 3. deild í sumar.

Tómas Joð er uppalinn Fylkismaður og hefur spilað allan sinn feril í Árbænum fyrir utan sumarið 2008 þegar hann var á láni hjá Aftureldingu.
Í fyrra var hinn 29 ára gamli Tómas í fríi frá fótbolta en hann hefur nú skipt yfir í KFG.

Samtals hefur Tómas skorað ellefu mörk í 178 deildar og bikarleikjum á ferlinum.

Tómas gæti spilað sinn fyrsta leik með KFG á fimmtudaginn þegar liðið mætir Víkingi Ólafsvík í Mjólkurbikarnum.

KFG fær KF í heimsókn í fyrstu umferðinni í 3. deild þann 12. maí næstkomandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.