Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 17. apríl 2026 19:40
Alexander Tonini
Alex Freyr: Framkvæmdastjóri með öll önnur verkefni nema leikmannamál, hvað þýðir það?
Alex Freyr Hilmarsson er bæði fyrirliði liðsins og framkvæmdastjóri knattspyrnusviðs ÍBV
Alex Freyr Hilmarsson er bæði fyrirliði liðsins og framkvæmdastjóri knattspyrnusviðs ÍBV
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Alex Freyr Hilmarsson fyrirliði ÍBV fór meiddur af velli á 22. mínútu leiks á Hlíðarenda í dag þegar Valsmenn unnu ÍBV 2-1.

„Fór eitthvað aftan í læri, smá súrt núna en ég held að þetta sé ekki mikið. Sjáum til á morgun."

Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Valur tók yfir leikinn í þeim seinni.

„Mér fannst við vera með góða stjórn til að byrja með. Leikplanið gékk ágætlega upp og við vorum að búa til mjög góðar stöður. Svo missum við þetta aðeins frá okkur."

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 ÍBV

Athygli vekur að Alex Freyr Hilmarsson er bæði fyririði liðsins sem og framkvæmdastjóri knattspyrnusviðs, en í hverju felst starfið?

„Þá ætla ég bara að segja á móti hvað er það sem ég geri ekki? Það er bara mikið af verkefnum, mikið á döfinni og mikið af einhverju skemmtilegu sem við erum að vinna."

Alex Freyr reynir þó að skipta sér sem minnst af leikmannamálum, eða hvað?

„Nei, ég er hef reynt að halda mér svolítið fyrir utan það. Það er mikið af verkefnum, öllu öðru nema leikmannamál. Hvað þýðir það?"

En hvað finnst Alexi Frey um uppsögn Láka í lok síðasta árs og þá sérstaklega ummælin sem hann lét falla um stöðu framkvæmdastjórans?

"Bara hans skoðun og allt í góðu."

En horfir þetta mál öðruvísi við þér?

"Já það gerir það, en engin gremja. Frábært hjá Láka að hætta á þessum tímapunkti í stað þess að bíða í einhverja mánuði lengur og byggja upp einhverja gremju hjá sér. Ef hann sá sér ekki fært um að sinna þessu þá var þetta bara góður tími til að hætta held ég.", sagði Alex Freyr að lokum.

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner
banner