Stórlið berjast um Gvardiol - Gomes til Atlético - Enrique framlengir við PSG
Venni: Þurfum að hreiðra um okkur á toppnum
Elfar Árni: Viljum ekki hafa einhvern sem vill ekki vera hérna
Gunnar Heiðar talar um barnaleg mistök - „Verðum að gera betur í meistaraflokki"
Badu fann fyrir létti - „Ég á ekki að bregðast svona við"
Nenad: Er kominn með afsökun til að bekkja allt liðið
Gísli Eyjólfs: Við þurfum að fara vakna
Frábær frammistaða Keflvíkinga - „Hann er gríðarlega mikilvægur fyrir okkur"
Heimir óánægður með viðbrögð síns liðs: Fannst við aldrei reyna
Davíð Smári: Einhver tappi losnaði
Lárus Orri: Ekki eitthvað eitt sem hægt er að horfa í hvað það varðar
Hemmi svekktur: Stóru ákvarðanirnar allar á móti okkur í dag
Jói Kalli: Hörkugæði og hraði í þessum strák
Jakob Byström í viðtali á íslensku: Súper glaður
Brynjar Björn: Við verðum að nýta færin sem við fáum
Óli Skúla hundóánægður: Spiluðum þetta upp í hendurnar á þeim
Rúnar Kristins: Sjaldan fagnað eins mikið og núna
Langbesta frammistaða Mosfellinga - „Ungur og efnilegur leikmaður sem á framtíðina fyrir sér”
Gils Gíslason: Við erum miklu betri en þessi tvö stig
Amin: Hélt að ég yrði alltaf í byrjunarliðinu og þyrfti ekki að verjast
Jökull segist ekki finna fyrir pressu - „Svekktur fyrir hönd liðsins“
   fös 17. apríl 2026 20:29
Alexander Tonini
Alexsandar Linta: Þegar maður tapar er maður aldrei viss
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV á Hlíðarenda í dag.
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV á Hlíðarenda í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aleksandar Linta þjálfari ÍBV var eðlilega svekktur eftir leik þegar ÍBV missti niður 1-0 forystu og tapaði að lokum 1-2 gegn Val á Hlíðarenda í dag.

„Ég er ekki alveg viss með frammistöðuna, alltaf þegar maður tapar þá er maður aldrei viss. Ég þarf að sjá leikinn aftur til að vera alveg viss um það sem ég taldi mig hafa séð. Svolítið leiðinlegt að færa Valsmönnum þessi tvö mörk á silfurfati."

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 ÍBV

Eyjamönnum urðu fyrir því óláni að missa fyrirliða liðsins Alex Frey Hilmarsson af velli vegna meiðsla á 22. mínútu leiks.

"Við erum líka með aðra meidda leikmenn ekki bara hann. Hins vegar hef ég fulla trú á þeim leikmönnum sem ég er að þjálfa. Auðvitað söknum við fyrirliðans, hann er reynslumesti leikmaður liðsins."

Athygli vakti að Viggó Valgeirssyni var skipt af velli í hálfleik, var það vegna meiðsla eða vegna frammistöðu?

„Þetta var ákvörðun sem við tókum í hálfleik en ekki vegna meiðsla.""

En fannst Linta eins og sóknarleikurinn hafi drabbast niður eftir að Viggó var tekinn af velli?

„Já kannski en að sama skapi tapaði hann mörgum boltum í fyrri hálfleik og það er ástæða þess að við gerðum breytingar og settum öruggari leikmann inn á í hans stað."

„Viggó er auðvitað mjög góður leikmaður, hann var mjög góður í síðasta leik og hann verður góður í framtíðinni fyrir okkur líka. Þetta er allt saman eðlilegt."

Sjáðu viðtalið í heild í spilaranum hér að ofan.
Slapp
banner