Gísli Eyjólfsson snýr aftur á Kópavogsvöll í kvöld eftir rúmlega tveggja ára fjarveru eftir veru í Svíþjóð.
Gísli snýr á völlinn sem leikmaður ÍA en hann samdi á Skaganum fyrir áramót. Leikurinn í kvöld er liður í 2. umferð Bestu deildarinnar.
Anton Ari Einarsson lék með Gísla hjá Breiðabliki á árunum 2020-2023 og var markvörðurinn spurður út í miðjumanninn í viðtali eftir leikinn gegn Víkingi í fyrstu umferð.

„Mér líst vel á að fá Gísla á Kópavogsvöll. Við þurfum að leggja allt kapp á að stoppa hann, náttúrulega ótrúlega góður leikmaður og við þekkjum hann vel. Við þurfum að stoppa þá alla, en það verður gaman að mæta Gísla," sagði Anton Ari.
2. umferð Bestu
föstudagur 17. apríl
16:30 Valur-ÍBV (N1-völlurinn Hlíðarenda)
17:30 KR-Þór (Meistaravellir)
17:30 KA-Víkingur R. (Greifavöllurinn)
18:00 Fram-Keflavík (Lambhagavöllurinn)
18:00 Breiðablik-ÍA (Kópavogsvöllur)
20:00 Stjarnan-FH (Samsungvöllurinn)